Guð Hvað Þú Ert Getnaðarlegur, Suddalega Sexý Og Kynferðislega Kósý ;D
Klukkan
05.06.2008 23:23:13 / Kolbrún Júlía

5. júní

Kvöldið.

Langaði bara að láta heyra í mér, man ekkert hvenar ég skrifði síðast, en það hlítur að vera komnar nokkrar vikur síðan. Samt ekki alveg mánuðir eins og hjá sumum ;) hihih

Byrja á því að láta ykkur vita að ég er bara orðin góð í bakinu, þakka öll blómin og batakveðjurnar sem ég fékk ;) hehehe. Held að það sé bara inn í dag hjá frændfólki mínu að detta, og auðvitað varð ég að vera með í trendinu. Ættum bara ða stofna eitthvað team!

En já hef svo sem ekkert að segja. Á afmæli eftir nokkra daga, eða samt vikur, 30. Júní!!!! Þið munið bara eftir því!

Hvað ætla ég að gera í sumar? uuu... leyfið mér að hugsa, ekki neitt! eina sem ég er búin að plana að gera er að fara á bíladaga. Á ennþá eftir að redda gistingu, ætli við Aðalsteinn endum ekki í tjaldi bara hjá  fólki sem ég þekki, það býr svona 10 mín fyrir utan Akureyri. Nenni allavegana ekki að vera á tjaldstæði með blindfullum gelgjum.

Já svo ætlaði ég bara að tjá mig um það að ég sé ekki fram á að ég sé að fara að kaupa mér crossara neitt eftir sumarið, er að fara borga tryggingar og drasl af bílnum sem eru yfir 100 þús. kallinn, en pabbi ætlaði að tala við sjóvó og reyna að fá þetta eitthvað lækkað. Hann er nú með 3 eða 4 bíla hjá þeim, ætti nú að fá eitthvað betri díl en þetta!

Já svo er ég bara komin í helgarfrí og er búin plana smá, ég og Rósa systir ætlum að elda saman og svo detta í það á laugardaginn. Gaman gaman, mér er allavegana farið að hlakka til!

En já nenni ekki að skrifa neitt meira í biiiiiili, við bara heyrumst næst þegar ég hef eitthvað fleira ómerkilegt að segja frá ;)

-Kolbrún :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2008 15:07:06 / Kolbrún Júlía

Kolla á afturdekkinu

Já góðan daginn!

Ákvað að blogga, því eina manneskjan sem les bloggið mitt.. hún Elfa sagði ég væri ekki að standa mig hérna. Sem er náttla alveg satt. Nenni ekki að vera ða blogga lengur, hef ekkert til að segja frá. Nema núna. Bjarki bróðir minn er í pössun og sagði alveg mega fyndið áðan.
Ég er s.s að læra undir nátt. próf. og svo spyr hann mig hvort hann megi fara í tölvuna...

Bjarki: má ég fara í tölvuna?

Ég: nei, ég er að læra

Bjarki: þú ert alltaf að læra!

Ég: já maður þarf að læra næstum alla sína ævi

Bjarki: æææji! Ég vildi að ég væri alltaf svona lítill stubbur. Ég ætla að byrja að drekka kaffi!

Ég: af hverju?

Bjarki: nú svo ég verði alltaf lítill!

Já einmitt, mér fannst þetta geggjað fyndið, veit ekki með ykkur.

En ég á bara eitt próf eftir og get ekki beðið eftir að það sé búið. Er reyndar búin að vera latasta Kolbrún í heimi að læra undir þetta próf :S  En vonandi reddast þetta!

Þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur af hverju færslan heitir Kolla á afturdekkinu. En þannig er nú mál með vexti að ég fór að hjóla uppí sveit í gær. Og ég var svo agalega "töff" að ég prjóna óvart og hreinlega rasskellti jörðina. Datt samt meira svona á mjóbakið. Er allavegna bólgin og aum. En þetta er samt ekkert alvarlegt þar sem ég var með allan hlífðarbúnað. Ætla bara að skella mér í pottinn til tengdó í kvöld og til að láta þessa bólgu aðeins hjaðna (segir maður það annars ekki, haha)

En ætla ekki að eyða tímanum í að skrifa hérna meir, hef meira mikilvægara verk að gera og það er að læra, er samt svona engan vegin að get einbeitt mér því ég nenni þessu ekki.

Heyrumst bara síðar, endilega verið duglegri að commenta!

-Kolla á afturdekkinu kveður :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 14:47:38 / Kolbrún Júlía

29. mars

Kannski komin tími til að blogga?
Jah maður spyr sig.

En þessi mánuður er alveg að verða búinn! Get ekki beðið, hlakka svo til að fá útborgað, fæ vonandi aðeins meira en venjulega þar sem ég vann soldið mikið í páskafríinu ;)
En mér hlakkar samt ekki til að sjá reikningin fyrir bílnum mínum þar sem hann er í erlendri mynt =o. Valdís var allavegana í sjokki yfir sínum, þannig að ég er alveg viðbúin!

Geggjað gott veður úti og ég hangi hérna inni í tölvunni. Svaf reyndar til hálf 1 og svo fór ég bara að ryksuga og svona, agalega dugleg. Enda verður að vera hugglegt hérna því að það ætla nokkrar stúlkur að koma hingað í kvöld að borða. Eða að eru Rósa systir, Elfa Björk og held Hrafnhildur, smá svona frænkumatur. Aðalsteinn fær samt að vera með.. hehe!  Ætlum að elda pasta A La Elfa, uppáhaldið mitt, svo ógeðslega langt síðan ég hef fengið svoleiðis. Bara seinast þegar stelpurnar komu hingað í matarboð.

En ég hef nú aldeilis fréttir að færa ykkur! Það er að koma nýr fjölskyldumeðlimur hjá okkur Aðalsteini! :D Nei ég er ekki ólétt! haha, erum að fara að fá hvolp um mánaðarmótin, býst við að náum í hann á þriðjudag eða miðvikudag! Oh mér hlakkar svo ógeðslega mikið til! :D

Og svo er komin þvottavél á heimilið loksins, get hætt að fara heim til múttu að þrífa ;) hehe. Þvílíkur munur! Var að setja í fyrstu vélina áðan og kann like ekkert á þessa þvottavél, þannig að við bara kemur í ljós hvort þetta var rétt stilling eða öll fötin mín verða eitthvað skrítin á því.

En hei, ætla að fara að finna mér eitthvað annað að gera en að vera í tölvunni. Bless!

-Kolbrún:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 13:59:00 / Kolbrún Júlía

19. mars

Sæl!

Bara að láta ykkur vita að ég er búin að setja inn myndir á myspace frá laugardeginum.
En það er ekki frásögu færandi að við stelpurnar tóku rosa djamm á þetta, get ekki sagt annað. Byrjuðum heim hjá Júlíönu fórum svo heim til Heiðu og svo var það skemmtilega Mörkin!

En annars er lítið að frétta af mér, bara í páskafríi sem er ekkert nema NICE, var reyndar bara að sofa út núna í dag, svaf til hálf 1... man nú ekki hvenar ég náði að sofa svona lengi. En vaknaði nú samt kl. 6:30 í morgunn og fór í einkaþjálfun en fór svo bara aftur að sofa eftir það.

Fór í eina fermingarveislu hjá frænda hans Aðalsteins á sunnudaginn. En það er eina fermingarveislan sem ég fer í. Það er fínt =)

Svo er gaman að segja frá því að ég er búin að þrífa bílinn minn svona 3 á 5 dögum. Þreif hann í seinustu viku, eða á föstudaginn minnir mig, svo aftur á sunnudaginn og svo aftur í gær! Haha, alveg brjáluð. En það er bara farið að rigna og ógeðslega leiðinlegt. Og bensínið búið að hækka alveg ógeðslega mikið, þannig að ég er ekkert að fara á rúntinn á hreina fína bílnum mínum =( Allavegana ekki í þessu skítaveðri.

En hef ekkert meir til að skrifa, þannig að við heyrumst bara
-Kolbrún :haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 23:11:26 / Kolbrún Júlía

13. mars

Hvað get ég sagt?

En það sem ég vildi sagt hafa er að það er PÁSKAFRÍ á morgunn. Get bara ekki beðið! Þarf svo á þessu fríi að halda þar sem að ég er komin með svo mikið ógeð af skólanum að ég gæti ælt! Þannig að þetta blessaða frí á eftir að gera öllum gott, held ég bara.

Þessi vika er búin að vera alveg crazy! Er búin að vera að vinna eins og mofó og svo fór frídagurinn í gær í það að LÆRA. Vá sko! Það er bara allt í gangi.
ég á bara ekki til orð.

En Júlíana, veit ekkert hvað ég get skrifað meir, en eins og þú sérð þá tók ég lykilorðið þar sem það er bara enginn tilgangur að hafa svoleiðis nema maður sé bara ða skrifa eitthvað agalega viðkvæmt. Ég er nú ekki mikið í þeim pakanum ;)

En ætla að fara að læra fyrir sögupróf =/

-Kolbrún :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 18:08:11 / Kolbrún Júlía

7. mars

Jæja þá er þessi dagur "búinn", eða svona næstum því.
Þessi vika og seinasta vika eru búnar að vera frekar erfiðar andlega. Þorvaldur heitinn lést seinasta fimmtudag og verður hans sárt saknað. Ekki nóg með það heldur þá deyr afi Sveinn á laugardeginum. Þannig að í þessari viku er búið að vea nóg að gera. Fór í kistulagningu hjá afa á þriðjudaginn, og svo á miðvikudaginn í litla kistulagningu hjá Þorvaldi. En það var sér fyrir Halla Má. Verð að segja að það var mikill léttir að fá að sjá Þorvald í seinasta skiptið. Hans verður sárt saknað og ég mun aldrei gleyma honum. Enda allt sem hann sagði og gerði er ekki hægt að gleyma, bara gullkorn! Í gær fór ég svo í jarðaförina hjá afa sem var mjög falleg. Í dag var svo jarðaförin hjá Þorvaldi sem er bara eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera. Aldrei hefði mér dottið í hug að þurfa að fara í jarðaför hjá vini mínum sem er jafn gamall og átti allt lífið framundan. En ég mun halda höfðinu hátt fyrir hann og hugsa um allar góðu minningarnar sem við áttum saman, og þakka ég guði fyrir að ég hafi fengið að kynnast þessum ljúfa, fyndna og uppátækjasama dreng!  :*
En svo má ekki a gleyma að hugsa til Halla sem ég get ekki ímyndað mér hvernig líði!

En þar sem ég er ekki búin að mæta neitt í skólann eftir hádegi nema í tvö daga þá bara veit ég ekki hvar ég á að byrja í lærdóminum. Gosh, það er svo ógeðslega mikið að læra og lesa að mér langar liggur við bara að segja mig úr skólanum. Hehe, en maður er nú ekki að fara ða gera það. Ég þarf bara að fara að fá páskafrí svo ég geti farið að gera eitthvað í þessu. En þessi helgi mun einkennast af lærdómi og vinnu. En ætla að ég reyna ða vakna snemma á morgunn og byrja að læra, vakna svona hálf 10 - 10. 
    Sit ég hér við tölvuna ða blogga á meðan ég get verið að læra, en verð bara að hætta að skrifa, ætla að leggja mig smá =o. og halda svo áfram að læra. Þannig að það verður bara lært í kvöld! Geggjað!

En heyrumst bara síðar!
-Kolbrún :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 23:03:21 / Kolbrún Júlía

Byrja aftur hér jafnvel?

Jah maður spyr sig?

Er svona að pæla að byrja bara að blogga hér aftur og læsa síðuni... vúhú! djók en hef svo sem ekkert að segja, frekar erfitt lífið þessa daga.

En heyrumst seinna... Er samt ennþá að nota myspace. Ætla bara ekki að blogga þar lengur :P heheheh

-Kolbrún :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 23:38:42 / Kolbrún Júlía

29.janúar

Jæja, herðu.... ætla að prófa að blogga bara núna inn á myspace. Sem er www.myspace.com/kollajod þannig að þar getið þið fylgst með hvað á daga mína drífur. En hey heyrumst bara á myspce ;D

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 17:40:09 / Kolbrún Júlía

15. janúar

Ætti maður kannski bara að blogga?

Ekki það að ég hafi eitthvað mikið að segja. Okay, það er bara janúar og ég er strax farin að pæla hvar ég eigi að vinna í sumar. Langar alveg að vinna á Galító og fá mikin pening, en eina að það eru svo langar vaktir =/ En þetta er svo sem fljótt að líða. En svo langar mér líka alveg geggjað mikið til að sækja um á leikskóla... langar prófa að vinna á leikskóla áður en ég ákveð mig endanlega hvort þetta sé það sem ég vilji læra. Já mig lagnar til að læra leikskólakennarann.

En svo er maður svona 50/50 að fara út útskriftarferð um næstu jól, þannig að það kostar alveg slatta. Maður fær náttal ekki neitt fyrir að vinna á leikskóla. Held samt að ég svona nokkuð ákveðin hvar ég ætla að vinna í sumar. Held að sé alveg betra að vinna bara á einum stað, heldur en að vinna kannski á leikskóla og fara svo að vinna á Gallito t.d. En já... bara smá ða hugsa hérna... hehe

En hvað er annars að frétta? Lýst ekkert á að það skoða svona 100 manns síðuna hjá mér á dag og bara svona enginn komment, frekar fúlt!!!

En var að pæla að setja inn myndir frá Danmerkur ferðinni með Galito, hvernig lýst ykkur á það? Það færi þá inn á myspace... leiðinlegt fyrir ykkur sem eruð ekki vinir mínir :P

Svo er ég búin að vera ógó dugleg, ætla ða monnta mig að ég fór 4x í ræktina í seinustu viku og ætla að gera slíkt hið sama það sem eftir er ;D Núna er bara að taka sig á sko!
Er einmitt að fara núna kl. 6 þannig að ég segji bara bless þanngað til næst og farið vel með ykkur :*

-Kolbrún :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 20:59:56 / Kolbrún Júlía

5. janúar

Blessuð!

Jæja þetta er allt að koma hérna á Vesturgötu, netið er komið og svona þannig að ég get loksins bloggað fyrir ykkur ;)

En já jólin og áramótin búin og þá vil ég meina að þetta sé bara allt saman búið. Eða reyndar finnst mér jólin bara búin eftir annan í jólum. En já fékk alveg helling að flottu dótu í jólagjöf og þakka ég öllum fyrir mig og Aðalstein. Áramótin voru svo bara mjöööög róleg. Var bara heima og fór í fyrri kanntinum ða sofa. Var nefnilega að fara að mæta í fyrirpartý kl. 10 um morguninn 1. janúar.

Danmerkurferðin með Galito heppnaðist bara vel að mér fannst. Ég skemmti mér mjög vel og sérstaklega aðalkvöldið, eða þegar árshátíðin var. Borðuðum geðveikan mat! Og svo var bara drukkið og skellt sér á karókíbar og þannig. Þar fór Áróra á kostum.
Ég hef bara aldrei verslað jafn lítið á ævi minni þegar ég fer svona til útlanda. Enda var ég líka með ógeðslega lítin pening, 40 þúsund. En ég verslaði mér 1 peysu, 3 boli, 2 klúta og svo keypti ég 1 úlpu handa Aðalsteini. Svo verlsaði ég mér 2 geisladiska og eina dvd mynd í dýrhöfninni hérna heima!

En í dag er maður bara búin að vera að gera mest lítið. Tók allt til hérna og Aðalsteinn með.. hehe. Það var ryksugað og skúrað. Svo búðum við Hilmari og fjölskyldu hans í mat. Ég eldaði hérna pasta a la Elfa og svo var ís með marssósu í eftirrétt. Roooosalega gott.
Kvöldið verður svo bara rólegt, dvd í bíósalnum hans Aðalsteins eins og hann vill kalla það.

Heyrumst jah eða jafnvel bara sjáumst síðar...

-Kolbrún :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 22:11:09 / Kolbrún Júlía

31. desember

Sæl öll.

Mega langt síðan ég hef bloggað, er bara búin að vera soldið mikið upptekin að vinna og reyna að koma mér í jólagrírinn og þannig, vitið hvað ég meina.

En ég ætla nú ekki að fara að rita hér hvað ég hef gert yfir árið, það yrði of löng og leiðinleg færsla held ég bara. Þið nánustu vitið náttla alveg hvað er búið að ganga á hjá mér.

En á laugardaginn fór ég í fjallaferð með öllum frændum mínum og Elísu. Guðný Birna var líka þarna í smástund en skulum ekkert ræða það neitt frekar. En já verð að segja að þetta var bara heavy skemmtileg ferð. Fórum á Langjökul og þar var Elísa alveg óð á snjósleðanum eins og engin væri morgun dagurinn hjá henni. Ég skellti mér auðvitað í smástund, en verð að fara að fjárfesta í almennilegum vettlingum og skóm! Verður vonandi komið fyrir næstu ferð ;)

Svo er ég bara að fara til Danmerkur með Galito á morgunn. Það verður fyrirpartý heima hjá Margréti Elfu kl. 10... verður geggjað stuð, efast ekki um það! Manni er farið að hlakka smá til.. En væri alveg til í að eiga pening til að eyða þarna úti þar sem búðirnar opna 2. janúar og byrja útsölur og svona. Þarf reyndar bara að fara í þrjár búðir, Bikbok (eða hvenrig sem það er skrifað;) H&M og New Yourkers. Þá er ég bara góð!
En þetta er ekki verslunarferð, þetta er Djamm ferð hehehehehe....

En þá ætla ég bara að kveðja og ég óska ykkur öllum Gleðilegt nýtt ár og hafiði það gott!

-Kolbrún :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 11:35:51 / Kolbrún Júlía

18. desember

Já ég bara veit ekki lengur munin á september og desember!
Það er alveg að sanna sig, enda er ég búin að vera of upptekin við að læra undir próf og þannig, auðvitað ruglast maður á þessu krakkar!

Jæja, þá ætla ég loksins ða blogga svona af því að ég er í húsi sem er með tæknina á hreinu. Ég er sem sagt flutt að heiman og komin á Vesturgötu 129, neðri hæð! Soldið skrítið að vera komin frá mömmu og pabba, og fara ekki heim þið fattið. En þetta venst. Tæknin er s.s ekki komin á mitt heimili, ekki búið að tnegka sjónvarp og ekkert internet. Sem sagt, ég gæti bara dáið, leið svona í gær eins og ég byggi í torfkofa!
Þarna sýnir það sig hvað maður er rosalega háður netinu og sjónvarpinu. Samt aðalega netinu!

Í dag var ég að fá útúr prófunum og ég bara á ekki til orð. Ég náði ÖLLU..!!!! Þetta er nú eitthvað til að monnta sig af. Hef bara ekki náð öllu síðan bara á fyrstu og annari önninni hjá mér. Ég er allavegana mjög svo sátt.

Ens 303 - 7
Ísl 303 - 7
Lan 103 - 8
Stæ 122 - 7 (já ég náði stæ, og með 7, bjóst ekki við því;)
Upp 103 - 7
Íþr3j13 - 8

Stærðfræðitímarnir hjá Kalla frænda hafa alveg borgað sig! Það sýnir sig og sannar hér. Bjóst alls ekki við því að fá 7! OH ég er svo glöööööð!
Ekkert undir 7 og bara allt í gúddí!

Er svo búið að vera að vinna síðan á fimmtudag í seinustu viku og er að fara að vinna í dag kl. 18. Og svo er ég í fríi á morgunn (miðvikudag). Svo fer ég að vinna á fimmtudaginn kl. 18. Og fer svo í 2 daga frí!!! :D Og vinn svo allan daginn á sunnudag á Þorláksmessu. Það verður stuð, skotuveisla á Galito. Hlakkar til að vinna við það, þetta verður bara stuð ;)

En jæja, ætlaði bara að láta að vita af mér að ég sé á lífi, annars hefðu þið nú örugglega frétt það. Hehe... Bless þanngað til næst =o)

-Kolbrún Glaða :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 13:42:43 / Kolbrún Júlía

10. september

Ég verð nú bara að blogga í tilefni þess að  ég á að vera að læra.
Gaman að segja frá því að ég vakanði kl. hálf 9 í morgunn. En þurfti að jafna mig eftir "martröðin" sem ég fékk, þannig að ég svaf hálf tíma lengur!
Þetta var nú samt ekkert beint martröð, dreymdi bara að pabbi væri búin taka öll bestu fötin mín og lét mig og Rósu fara með þau í rauða krossinn, en ég vissi ekkert að þetta væru mín föt fyrr en kallinn fór að tak þau uppúr kassanum.  En hvað um það, þetta var bara draumur og fötin mín eru á sínum stað, já ég gáði :lol:

En já eftir það hoppaði ég í skólann til að prenta út glósurnar sem ég var að gera á laugardaginn og sunnudaginn. Er að fara í landafræði 103 á morgunn. Ljósritaði líka 2 próf til að spreyta mig á! Er ekkert orðin svo kvíðin fyrir þetta próf, en ég finn fyrir kvíðanum þarna!
Svo kem ég hérna heim og ætla að fara að læra... sko læra fyrir framan sjónvarpið, þið vitið hvernig það endar. Þurfti að horfa á einn þátt. Svo þegar hann var búin birtist Vala Matt á skjáinn þannig að ég slökkti og ætlaði mér sko að fara að læra, en ég steinsofnaði örugglega í svona klukkutíma!!!

Annars er ekkert merkilegt sem ég ætlaði að tala um, bara að láta vita af mér. Skellti mér í vinnuna á föstudag og laugardag, varð bara að óhlýðnast lækninum :P En var að vinna á jólahlaðborðinu sem Galtio stóð fyrir og var það bara fínasta skemmtun. Gott að komast í jobbið í nokkra tíma!

En núna verð ég að fara að læra, klukkan er 13:41 og ég er ekki búin að læra neitt að viti!!!! Þannig að wish me luck og bless þanngað til næst =)

-Kolbrún :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 15:02:36 / Kolbrún Júlía

4. desember

Ætla að byrja á því að óska Valdísi innilega til hamingju með afmælið!

Já má segja það að ég er búin að vera mjög pirruð í dag. Nenni ekki að hanga hérna heima og læra! Mikið rosalega finnst mér það alveg drepleiðinlegt, og plús það að ég má ekki fara í vinnuna! Út af því ég var að byrja á einhverju sýklalyfi og má ekki vera í vinnua eða skóla í 10 daga!!!!! OMG... hefði nú samt alveg getað unnið í gær og í dag. Eru ekki komnar neinar aukaverkanir. Já gaman að segja frá því að aukaverkanir eru niðurgangur, og svo þetta týbíska hiti og flökurleiki og blah!! Alveg ekki að nenna þessu!
Já ég er ógeðslega pirruð... :S

Búin að sitja hérna í sófanum í allann dag og reyna að læra eitthvað í Egils Sögu. Ætla nú að vona að ég falli ekki aftur í henni með 4!!!
Fór í uppeldisfræðiprófið í gær, og gekk það bara ágætlega held ég.

Hlakkar ógeðslega til þegar þessi próf eru búin, og geta bara hætt að vera stressuð yfir einhverjum prófum og farið að vinna, já hef einhverja óstrjórnlega þörf fyrir að vinna, kannski út af því ég má það ekki.. hehe. Og svo líka bara getað farið í íbúðina og farið að þrífa svo við getum farið að fara þanngað inn.
Ætlum að vera bara með rúmið inní stofu örugglega í smátíma því að svefnherbergið er ekki tilbúið. Á eftir að gera allt þar inni, spasla og og velja lit og svo bara mála og þrífa.
Erum samt búin að mála alla stofuna og eldhúsið, þannig að það er allt tilbúið þar, bara efitr að þrífa allt ryk og drullu svo það sé hægt að vera þarna. Svo á bara eftir að mála loftið inná klósetti, þá er bara eitthvað smotterí eftir sem er bara hægt að gera í rólegheitunum :)

En jæja, ælta að halda áfram að læra í leiðinlegu Egils Sögu =/

-Kolbrún :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 12:36:05 / Kolbrún Júlía

28. nóvember

Jæja...

Þá er komið upp ástand á heimilinu... allt vitlaust! Nei djók...
En litla vandamálið mitt er að mér langar svo ógeðselga rosalega viðbjóðslega mikið að fara á Palla ball á laugardaginn að það liggur við að ég festi ekki svefn!
Þannig að ég fór svona ða pæla... af hverju ekki bara að skella sér? Meina það er ekki eins og ég eigi eitthvað eftir að vera að læra kl. 12 á laugardagskvöld!
Okay, er reyndar að vinna alla helgina, en ég byrja ekki að vinna fyrr en 6, þannig að ég hef þarna allann daginn til að læra undir prófið sem ég er að fara í á mánudaginn í uppeldisfræði. En fer að vinna kl. 3 á sunnudaginn... þá bara að taka hörkuna á þetta og vakna snemma. Ætla reyndar að vera búin að gera allar glósur fyrir laugardag, þannig að ég þarf bara að lesa þær á sunn.

Er málið að skella sér á eitt stk Palla ball ??? :$

Bara eins og heimurinn sé að farast hjá mér af því mér langar svo á eitt ball.. haha, en þetta er Páll Óskar! og Petra og Júlíana ætla að fara, og langt síðan við höfum gert allar eitthvað saman!´
Ég finn útúr þessu á laugardaginn, sé hvernig ég stend í lærdómnum...

En seinast prófið í dag svona áður en lokaprófin byrja, er að fara í próf í english og var í munnlegu í gær og stæ. prófi líka.
Svo er ísl. 303 að fara í einhverja ferð til Borgarnes að skoða þarna safnið, man bara ekkert hvað það heitir... hehe! :P

Jess útborgað eftir 2 daga, hlakkar mér til að hvað, get hætt að vera blönk!
Er alveg farin að sjá það hvað það er rooooosalega dýrt að reka bíl :S en þetta vildi ég!
En ég vil ekkert slelja flotta sæta kaggann minn... og hvar væri ég án hans? ;D

En héðan í frá nenni ég ekki að setja myndir hérna inná síðuna... þannig að þið getið bara skoðað þær inn á myspace...

Svo er ég að fara til Kalla frænda í dag og hann ætlar að kenna mér stærðfræði svo ég rúlli nú prófinu upp! Vonandi skil ég þetta hjá honum það sem ég er ekki búin að skilja alla helv... önnina!
Bææææ!

-Kolbrún :haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  31  Alls: 70433
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti